Hjólað að hausti um Langhe

Hjólað að hausti um Langhe

Langhe, Piemonte

29. sept - 8. okt 2026

Dásamlega fallegt landslag mótað af samspili náttúru og manns. Hæðir, víðáttur og vínviður eins langt og augað eygir, forn þorp og glæsilegir kastalar.

Verð

389.000 kr.

Sætafjöldi

16 sæti í boði

Dagafjöldi

10 dagar, 9 nætur

Við ætlum að njóta lífsins í Langhe og Roero í Piemonte og ferðast um á rafhjólum. Paradís hjólaáhugamanna, sælkera og vínunnenda, þar sem gróskumiklar vínekrur, endalausar hæðir, stórfenglegt útsýni og litlir miðaldabæir móta hina fullkomnu ferð. Það er ekki að ástæðulausu að þetta svæði sé á heimsminjaskrá UNESCO. Dásamleg gisting í sveitinni, hjólaferðir, slökun, matarupplifun og margt fleira í einstakri ferð.

Þátttakendur í ferðinni þurfa að vera nokkuð vanir að hjóla. Erfiðleikastuðullinn er meðalhár og sumar brekkurnar eru nokkuð krefjandi en þá hjálpar rafmagnið auðvitað til. Það er alltaf trússbíll með í för og a.m.k. tveir fararstjórar, þannig að enginn er skilinn eftir og allir fara á sínum hraða.

Gist verður á hotel Relais Montemarino sem er nýlega uppgert sveitasetur. Virkilega fallegt, hreinlegt hótel með æðislegu útsýni til Alpanna. Á hótelinu er einnig sundlaug og verönd fyrir sólbaðsaðstöðu.

Verðið miðast við einstakling í tveggja manna herbergi. Fyrir þau sem vilja dvelja í einstaklingsherbergi bætast 100þ kr. við heildarkostnað.

Casa Maja áskilur sér rétt til þess að endurgreiða staðfestingargjald og fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Innifalið:

Beint flug með Icelandair til Mílanó (MXP) og til baka. 23kg taska & 10kg handfarangur.

Öll gisting, gistináttagjald og morgunverður á hóteli.

Allur akstur í skv. dagskrá, afþreying og pastanámskeið.

Allur matur og drykkir í Casa Maja og hádegisverður á heslihnetubúgarði.

Rafhjól og hjálmur þá daga sem hjólað er.

Ein kvöldmáltíð á veitingastað, án drykkja.

Ekki innifalið:

Ferðatryggingar.

Valkvæðar ferðir og afþreying.

Dagskrá

Dagur 1

29. september - Komudagur og "mjúk lending"

Brottför frá Keflavík með Icelandair klukkan 9:00. Beint flug til Milan. Lending á Milan Malpensa klukkan 15:10. Þar mun ég taka á móti ykkur og keyra á Hotel Relais Montemarino. Tékkað inn á hótel og þið keyrð í Casa Maja þar sem ykkar bíður matur og drykkir.

Dagur 2

30. september - Hjóladagur 1 - Heslihnetubúgarður

Dagur 2

30. september - Hjóladagur 1 - Heslihnetubúgarður

Dagur 2

30. september - Hjóladagur 1 - Heslihnetubúgarður

Dagur 3

1. október - Hjóladagur 2 - Gömlu þorpin

Dagur 3

1. október - Hjóladagur 2 - Gömlu þorpin

Dagur 3

1. október - Hjóladagur 2 - Gömlu þorpin

Dagur 4

2. október - Hjóladagur 3 - Sveitasæla

Dagur 4

2. október - Hjóladagur 3 - Sveitasæla

Dagur 4

2. október - Hjóladagur 3 - Sveitasæla

Dagur 5

3. október - Albadagur

Dagur 5

3. október - Albadagur

Dagur 5

3. október - Albadagur

Dagur 6

4. október - Hjóladagur 4 - Barolo

Dagur 6

4. október - Hjóladagur 4 - Barolo

Dagur 6

4. október - Hjóladagur 4 - Barolo

Dagur 7

5. október - Hjóladagur 5 - Canelli og Castagniole delle Lanze

Dagur 7

5. október - Hjóladagur 5 - Canelli og Castagniole delle Lanze

Dagur 7

5. október - Hjóladagur 5 - Canelli og Castagniole delle Lanze

Dagur 8

6. október- Vínsmökkun

Dagur 8

6. október- Vínsmökkun

Dagur 8

6. október- Vínsmökkun

Dagur 9

7. október - Partý og pastagerð

Dagur 9

7. október - Partý og pastagerð

Dagur 9

7. október - Partý og pastagerð

Dagur 10

8. október - Heimferðardagur. Arrivederci!

Dagur 10

8. október - Heimferðardagur. Arrivederci!

Dagur 10

8. október - Heimferðardagur. Arrivederci!

Tryggðu

þér

Tryggðu

þér

sæti strax!

sæti strax!

Þú getur tryggt þér sæti í þessa ferð strax með því að greiða staðfestingargjaldið hér að neðan.

Við höfum svo samband um hæl og sendum upplýsingar um framhaldið.