Langhe, Piemonte
15. sept - 22. sept 2026
Þetta er ferð fyrir alvöru vínáhugafólk þar sem framreiðslumaðurinn Ólafur Örn Ólafsson leiðir hópinn á algjöra leynistaði. Vínin, húmor og ekki síst sérþekking Óla og tengsl Maju við sveitina gerir þetta að ógleymanlegri upplifun.
Verð
575.000
Sætafjöldi
15 sæti í boði
Dagafjöldi
8 dagar, 7 nætur
575.000 á mann í tvíbýli
+ 85.000 fyrir einbýli
ALLT innifalið
Komdu með okkur í ferð til þess að kafa dýpra í menninguna en hefðbundnar vínferðir bjóða upp á og kynnumst fólkinu í sveitinni. Með Óla í fararbroddi og Maju með sín sterku tengsl við sveitina förum við inn í hjarta Langhe og kynnumst svæðinu í gegnum smærri framleiðendur með merkilega sögu, einstök vín og heimafólkið sem skapar sérstöðuna. Hér snýst upplifunin ekki um stærstu nöfnin heldur það sem er ekta, persónuleikann, hefðina, handverkið og stemninguna sem fyrirfinnst aðeins á þessum leynistöðum sem Maja þekkir svo vel.
Gistingin í þessari ferð er ekki af verri endanum. Við byrjum á því að eyða 3 nóttum á I Quattro Pozzi í nágrenni Barolo. Hótelið er vel útbúið með góðum morgunverð og sundlaug með útsýni yfir vínekrurnar. Miðaldabærinn La Morra er í göngufjarlægð þar sem finna má bari og veitingastaði í frítímanum. Seinni hluta ferðarinnar gerum við sérlega vel við okkur í sveitinni hennar Maju. Við gistum í fjórar síðustu næturnar á lúxushótelinu Relais Villa d'Amelia með dásamlegu útsýni og allri þeirri þjónustu sem þarf til þess að njóta sérstaklega vel.
Aðeins um Óla - Sérlegan vínsérfræðing ferðarinnar
Þegar við leggjum af stað í rannsóknarleiðangur um Langhe í Ítalíu er enginn betri til að leiða hópinn en Ólafur Örn — Þekktur veitingamaður og sommelier sem hefur helgað líf sitt góðum vínum og mat.
Óli hefur verið leiðandi í velgengni fjölda veitingastaða og hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars alþjóðlegu gæðaviðmiðum Michelin. Hann hefur skapað verðlaunavínlista, gert sjónvarpsþætti um ferðalög og matarupplifanir og gegndi um tíma stöðu forseta Vínþjónasamtaka Íslands. Þegar ljósin slokkna á kvöldin á hann það meira að segja til að hafa hamskipti og koma fram sem sjálfur DJ Sommelier — því vín og tónlist eiga samleið líkt og skefti og blað.
Í dag rekur Óli Vínstúkuna Tíu Sopa á Laugavegi, hlýlegan og heimilislegan veitingastað þar sem yfir 200 vín frá smærri evrópskum framleiðendum prýða hillurnar. Einmitt þar byrjar ævintýrið okkar skömmu fyrir brottför þar sem Óli kennir okkur undirstöðurnar í vínsmökkun og hristir saman hópinn.
Taktu dýfu inn í vínviðarþaktar hlíðar Langhe með okkur þar sem dyrnar að bestu framleiðendum svæðisins opnast og fólkið í sveitinni tekur okkur opnum örmum.
Athugið að heimsóttir vínbændur og tímasetningar heimsókna geta breyst lítillega þar sem þetta er háannatími í vínuppskerunni.
Innifalið:
Beint flug með Icelandair til Mílanó (MXP) og til baka. 23kg taska & 10kg handfarangur.
Öll gisting og gistináttagjald.
Veglegt smakk, heimsóknir hjá öllum framleiðendum og námskeið á Tíu Sopum
Allar máltíðir nema í frjálsum tíma.
Allur akstur í skv. dagskrá, afþreying og pastanámskeið.
Allur matur og drykkir heima hjá Maju í Casa Maja.
Ekki innifalið:
Ferðatryggingar.
Valkvæðar ferðir og afþreying.
Drykkir á veitingastöðum nema vínpörun Campamac
Dagskrá
Þú getur tryggt þér sæti í þessa ferð strax með því að greiða staðfestingargjaldið hér að neðan.
Við höfum svo samband um hæl og sendum upplýsingar um framhaldið.




























