Prjónað í Piemonte

Prjónað í Piemonte

Langhe, Piemonte

10. - 16. maí 2026

Einstök prjónaferð með Casa Maja þar sem ullarmenning, prjónastundir og ítölsk lífsgleði fléttast saman við hjólatúra, vínsmökkun og ljúffengan mat í hinu stórkostlega sveitalandslagi Piemonte.

a narrow street with a store with a bunch of colorful items on display
a narrow street with a store with a bunch of colorful items on display

Verð

UPPSELT!

Sætafjöldi

16 sæti í boði

Dagafjöldi

7 dagar, 6 nætur

Í þessari spennandi prjónaferð til Biella og Langhe í Piemonte sameinast prjónaskapur, ítölsk matarmenning og stórbrotin náttúra í einstaka upplifun. Ferðin hefst í Miagliano sem er í Biella héraði. Bærinn Miagliano hefur viðurnefnið ,,città della lana" ullarbærinn og þar kynn­umst við ullarframleiðslu, rótgróinni handverkshefð og skoðum girnilegar garnhillur sem kveikja á innblæstri.

Á leiðinni í Casa Maja stoppum við í rómuðu garnbúðinni Wool Crossing í Tórínó áður en við komum á áfangastað þar sem Maja Ragg töfrar fram aperitívo og síðan kvöldverð sem við gæðum okkur á úti á veröndinni. Að loknum kvöldverði fara prjónarnir á loft og dreypt er á góðum drykk.

Við hjólum um sveitina til Barbaresco og Neive, njótum útsýnis yfir víngarða og stoppum á kaffihúsum og vínhúsum þar sem prjónarnir fylgja að sjálfsögðu með. Þær sem kjósa rólegri daga geta dvalið í Casa Maja, prjónað í kyrrðinni og notið útsýnisins yfir hæðirnar. Ferðin inniheldur einnig vínsmökkun hjá Poderi Colla, grillkvöld í Casa Maja og líflegan markaðsdag í Nizza Monferrato þar sem litir, hráefni og gleði ítalskrar matargerðar fléttast saman við prjónaskapinn. Á heimleið stöldrum við við í Alba, fáum okkur espresso eða vín og prjónum eins og enginn sé morgundagurinn.

Þetta er ferð fyrir prjónara sem vilja sameina handverk, menningu, mat og vín— þar sem hver dagur býður upp á góðar prjónastundir, ljúffengan bita og innblástur sem fylgir heim í prjónakörfuna.

Innifalið:

Beint flug til Mílanó (MXP) og til baka. 23kg taska & 10kg handfarangur.

Öll gisting, gistináttagjald og morgunverður á hótelum.

Allur akstur í skv. dagskrá og afþreying (fyrir utan val).

Allur matur og drykkir í Casa Maja.

Rafhjól og hjálmur.

Ekki innifalið:

Ferðatryggingar.

Valkvæðar ferðir og afþreying.

Dagskrá

Dagur 1

10 maí - Komudagur og "mjúk lending" í Miagliano Biella

Frá Keflavík til Milan Malpensa. Þar mun Maja taka á móti hópnum og þaðan keyrt sem leið liggur til Miagliano Biella sem er öðru nafni kölluð ,,citta della lana” eða ullarborgin. Tékkum okkur inn á gististaðinn og borðum á veitingastað áður en lagst er til hvílu

Dagur 2

11. maí - Ullarverksmiðjan & Piazzo Biella

Dagur 2

11. maí - Ullarverksmiðjan & Piazzo Biella

Dagur 2

11. maí - Ullarverksmiðjan & Piazzo Biella

Dagur 3

12. maí - Ullarkaup í Torino og prjónað í Casa Maja

Dagur 3

12. maí - Ullarkaup í Torino og prjónað í Casa Maja

Dagur 3

12. maí - Ullarkaup í Torino og prjónað í Casa Maja

Dagur 4

13. maí - "Prjónað" á hjólunum um Langhe

Dagur 4

13. maí - "Prjónað" á hjólunum um Langhe

Dagur 4

13. maí - "Prjónað" á hjólunum um Langhe

Dagur 5

14. maí - Vínsmökkun og grillveisla í Casa Maja

Dagur 5

14. maí - Vínsmökkun og grillveisla í Casa Maja

Dagur 5

14. maí - Vínsmökkun og grillveisla í Casa Maja

Dagur 6

15. maí - Sveitamarkaður, Alba og meira prjón

Dagur 6

15. maí - Sveitamarkaður, Alba og meira prjón

Dagur 6

15. maí - Sveitamarkaður, Alba og meira prjón

Dagur 7

16. maí - Haldið heim í rólegheitunum. Arriverderci!

Dagur 7

16. maí - Haldið heim í rólegheitunum. Arriverderci!

Dagur 7

16. maí - Haldið heim í rólegheitunum. Arriverderci!